Verið er að skoða mögulega sameiningu eða samþættingu verkefna hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknastöð við Mývatn, Umhverfisstofnun vegna verkefna á sviði vöktunar og Veðurstofu Íslands. Þá verða jafnframt skoðaðir mögulegir samstarfsfletir við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði.
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sett af stað vinnu við frumathugun á þessu sviði.Tilgangur verkefnisins er m.a. að meta þarfir, skilgreina markmið og framtíðarsýn og leiða í ljós hvort sameining stofnana eða samþætting verkefna sé góður kostur.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á samhæfingu rekstrarumhverfis ríkisstofnana sem stunda rannsóknir og þróun, til að tryggja að fjárveitingar til rannsókna og þróunarstarfs nýtist sem best. Verkefnið er í anda tillagna hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar sem fela m.a. í sér að bæta hagkvæmni og árangur í ríkisrekstri, að rekstur ríkisins verði gerður skilvirkari og framleiðni aukin.