Halldór vill að óskað verði eftir opinberri rannsókn.
Halldór Gunnarsson, í Holti, segir að rannsaka þyrfti hvað varð um 470.000 krónur sem Inga Sæland, formaður flokksins, hafi farið með heim til sín og hann telur að peningarnir hafi ekki verið lagðir inn á bankareikning flokksins.
Halldór segir, í grein í Mogganum í dag að 470.000 krónur hafi safnast á fundi flokksins í Háskólabíói 13. júlí 2017. Ahöld eru um hvort peningarnir hafi skilað sér á bankareikningi flokksins. Halldór hefur eftir nafngreinum manni að Inga formaður hafi farið með peninga heim til sín.
„Þar sem ég var í fjármálaráði flokksins ætlaði ég að staðfesta á stjórnarfundinum að þessi fjárhæð hefði ekki verið greidd í bankareikninga flokksins 2017. Með þá vitneskju bæri mér sem félagsmanni flokksins og fyrrverandi stjórnarmanni og fjármálaráðsmanni að óska eftir því að opinber rannsókn færi fram á fjárreiðum flokksins. Þar sem ég tel að brottrekstur minn hafi verið staðfestur af þér losna ég undan þessari skyldu en vísa henni til hvers og eins félagsmanns í Flokki fólksins að fylgja þessu eftir en ganga annars úr flokknum verði þetta látið afskiptalaust af stjórn flokksins.“