„Út af orðum fyrri ræðumanns þar sem hann ávarpaði almættið þá ávítti forseti ekki fyrir blótsyrði eins og hefur verið gert hérna þegar hinn helmingur þess pars er nefndur hér á nafn í ræðustól Alþingis. Ég vildi bara benda forseta á það,“ sagði Björn Leví Gunnarsson á Alþingi.
Það var Jóhann Páll Jóhannsson sem sagði þetta í ræðu sinni:
„Ef hæstvirtur ráðherra getur ekki lýst því hvert ríkisstjórnin er að fara með almannatryggingakerfið, hvað í ósköpunum gengur á, í guðanna bænum eyddu þá óvissu fólksins þarna úti um þetta, hvort þessi eingreiðsla verði veitt eða ekki. Ekki láta fólkið hanga svona, bíða svona. Þetta er gersamlega óboðlegt.“