Í leiðara Moggans er skrifað um öryrkja Sækist fólk eftir mestri fátækt?og að; „…að ekki væri ólíklegt að einhverjir spiluðu á kerfið og misnotuðu það.“ Af öllum eru öryrkjar verst settir. Örorkulífeyrir er svo naumt skammtaður að ekkert festir fólk eins í fátækt og staða öryrkja.
Leiðarahöfundurinn skrifar einnig: „Sú hætta er vissulega alltaf fyrir hendi og nauðsynlegt er að koma í veg fyrir slíka misnotkun eins og hægt er, enda bitnar hún verst á þeim sem glíma við raunverulegan vanda.“
Í leiðaranum er að sjálfsögðu minnt á að flokkur Moggans vill frekar starfsgetumat en örorkumat.
Hvers vegna ungt fólk á Íslandi verður frekar öryrkjar en í öðrum löndum er allt annað mál en Mogginn vill vera láta, það er að fólk beiti blekkingum til að komast á versta stað fátæktar. Getur verið að láglaunastefna stjórnvalda og langir vinnudagar fari illa með fólk? Að það sé eitthvað í samfélaginu sem fer illa með fólk? Eitthvað annað en óheiðarleiki þeirra sem veikjast?