- Advertisement -

SA: Tryggingagjald verði lækkað

Vinnumarkaður Það er tímabært að lækka tryggingagjaldið að mati Samtaka atvinnulífsins en hátt tryggingagjald takmarkar svigrúm fyrirtækja til að ráða starfsfólk og fjölga störfum. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir það hafa verið mikil vonbrigði þegar þáverandi ríkisstjórn ákvað árið 2012 að hækka tryggingagjaldið, enda hafi forsvarsmenn vinnuveitenda og stéttarfélaga þvert á móti talið tilefni til lækkunar gjaldsins.

„Þegar ákveðið var að hækka tryggingagjaldið árið 2009 studdi atvinnulífið það, enda töldum við betra að takast á við aukið atvinnuleysi með þessum hætti frekar en með skuldsetningu atvinnuleysistryggingasjóðs. Það var hins vegar gert í trausti þess að tryggingagjaldið yrði lækkað aftur þegar svigrúm gæfist.“

„Við höfum orðað það þannig að fyrirtæki sem er með 10 manns í vinnu er með ellefta manninn á launaskrá vegna tryggingagjaldsins og þá er ekki horft á önnur launatengd gjöld. Almennt er það þannig að hærri kostnaður býr til hvata fyrir fyrirtæki til að auka frekar framleiðni og hagræða í rekstri frekar en að ráða fólk.“

Fjallað er um málið í ítarlegri fréttaskýringu Viðskiptablaðsins í dag.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: