Aðkeypt þjónusta er langt fram úr áætlunum.
„Sjálfsagt er að uppfæra og endurnýja þjónustustefnu eftir því sem tækninni fleygir fram. En hér er gengið of langt í fjáraustri. Milljarðar streyma frá sviðinu til einkafyrirtækja hérlendis og erlendis fyrir alls konar hugmynda- og nýsköpunarverkefni sem aðeins þröngur hópur sérfræðinga skilur til hlítar. Þjónustu hefur verið útvistað án þess að sýna fram á betri þjónustu,“ sagði Kolbrún Baldursdóttir á fundi borgarstjórnar
„Í opnu bókhaldi sviðsins má sjá að aðkeypt þjónusta til Capacent og Gartner group er 90 milljónir og er farið langt fram úr áætlun. Í gögnin vantar greiðslur til Advania, Opinna kerfa og Origo. Í yfirliti yfir stafræna umbreytingu 2021 á að setja rúma 3 milljarða. Ekki er séð að verið sé að reyna að hagræða. Er t.d. ekki hægt að sameina eitthvað af skrifstofum s.s. „skrifstofu þjónustuhönnunar“ og „skrifstofu gagnaþjónustunnar“ og „stafræn Reykjavík“ – á þetta ekki allt heima undir upplýsingatækniskrifstofu? Varla er hagræðing í að brjóta þetta upp í margar skrifstofur? Flokkur fólksins vill að innri endurskoðun rýni í þessar tölur. Reykjavík hefur boðist til að vera leiðandi í upplýsingatækni fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sveitarfélögin. Borgin kostar þessa vinnu og færir Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hana á silfurfati. Hafa borgarbúar samþykkt að borga brúsann fyrir önnur, sum hver stöndug sveitarfélög?“