Fjölmiðlar / Mogginn er upptekinn af stöðu fjölmiðla í dag. Hann skrifar, og það ekki sérlega vel, um RÚV í Staksteinum og í leiðara er líka skrifað um fjölmiðla. Þar er gert mikið úr því sem Mogginn kallar ritstýrða fjölmiðla. Öllum fjölmiðlum er ritstýrt. Hitt er annað að fáir fjölmiðlar eru frjálsir. Til dæmis frá eigendum sínum sem eiga mikilla hagsmuna að gæta í samfélaginu. Eigenda sem til að mynda berjast gegn breytingum á lögum um kvótann, gegn breytingum á breytingum á stjórnarskrá, gegn upptöku evru svo ekki sé talað um aðild að Evrópusambandinu. Þannig fjölmiðill er ófrjáls.
Sama á við um fjölmiðla sem draga taum valinna stjórnmálaflokka eða stjórnmálamanna. Mogganum er ætlað að gæta mikilla hagsmuna og er því alls ekki frjáls fjölmiðill. Mogginn er ritstýrður fjölmiðill. Spurt er samt hver ritstýrir honum? Er Mogganum ritstýrt úr Borgartúni 35? Hugsanlega.
Sjálfur segir Mogginn í dag: „Ritstýrðir fjölmiðlar, sem sagt það sem í daglegu tali teljast fjölmiðlar, er það sem fólk ætti fyrst og fremst að treysta á til að afla sér frétta. Þeir eru vissulega misjafnir og sumir jafnvel stórkostlega varasamir, en ef fólk velur sér miðla sem það reynir af því að vera traustsins verðir er það miklum mun betur statt en ef það gleymir sér í leit að „upplýsingum“ á vafasömum vefsíðum þar sem vitleysan veður uppi.“