Bjarni Benediktsson, sem eins og við vitum var misheppnaður viðskiptamógull, sá til þess að peningar ofanflóðasjóðs runnu inn á reikning ríkissjóðs, þar sem Bjarni er með prókúru. Þannig gat hann flaggað þar peningum sem sannanlega áttu að fara í annað. Í snjóflóðavarnir. Þetta var gert með stuðningi og vilja Katrínar Jakobsdóttur.
Það liggur við að fólk fái i magann við lestur fréttar i Mogganum í dag. Þar segir að lögum Ofanflóðasjóð hafi verið breytt 2018 og þá var kveðið á um að gjaldið sem áður skyldi renna í Ofanflóðasjóð rynni í ríkissjóð í samræmi við ný lög um opinber fjármál en fjárheimildir sjóðsins eru sem fyrr ákvarðaðar í fjárlögum. Bingó hjá Bjarna. Allsráðandi.
Halldór Halldórsson, fyrrverandi formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði og borgarfulltrúi í Reykjavík, er formaður stjórnar Ofanflóðasjóðs. Það er hann sem Mogginn ræðir við. Í viðtalinu er dregin upp hryllingsmynd af aðför ríkisstjórnarinnar að vörnum gegn náttúruvá.
Í Mogganum segist Halldór áætla að nú séu í sjóðnum 22-23 milljarðar og tekjur um 2,7 milljarðar á ári. Síðustu ár hafi aðeins um þriðjungur innheimts fjár farið í verkefni Ofanflóðasjóðs. Árið 2003 var ákveðið að hægja á framkvæmdum á vegum Ofanflóðasjóðs vegna þenslu í landinu á árunum 2004-2007. Í kjölfar efnahagsáfallsins 2008 dró úr því fjármagni sem Ofanflóðasjóður hafði til framkvæmda.
„Þetta er orðið vandræðalegt fyrir stjórnvöld,“ segir Halldór við Moggann. „Í upphafi var fyrirhugað að ljúka þeim verkefnum sem þá höfðu verið skilgreind, árið 2010, en síðan var miðað við árið 2020. Ef fram heldur sem horfir og miðað við það fjármagn sem árlega fer í framkvæmdir verður þeim ekki lokið fyrr en 2050. Það er vont að ævinlega virðist þurfa stóra atburði til að ráðamenn taki við sér.“
Í desember opinberaðist sleifarlag ríkisvaldsins við uppbyggingu raforkukerfisins. Þá bjó margt fólk við fráleitar aðstæður vegna þess að ríkisvaldið hafi sofið á verðinum. Árum saman og ekki hirt um það sem nauðsynlegast er. Það er uppbyggingu. Nú, fáum vikum síðar, opinberast að Bjarni Benediktsson hefur náð til sín meginhluta tekna Ofanflóðasjóðs. Hafi hann skammir fyrir. Sem og Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jónsson.
Sofandaháttur þeirra allra er afleiddur. Þau þurfa annað land og aðra þjóð.
-sme