Ríkisstjórnin og hennar 300 nefndir
Jú, stofna nefndir, hægri-vinstri, til að komast hjá því að þurfa að taka ákvarðanir.
„Stjórnmálaflokkarnir á Alþingi eru allir sammála um eitt mál, sem er sívaxandi framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokkanna óháð stöðu ríkissjóðs á hverjum tíma. Þessi fjáraustur til stjórnmálaflokkanna er gerður á þeim forsendum að styðja við lýðræðislega umræðu í þjóðfélaginu,“ skrifar Gunnar I. Birgisson í Mogga dagsins í dag.
„Stjórnmálaflokkarnir eru greinilega hættir við að fjármagna sig með framlögum frá flokksmönnum og fyrirtækjum. Sjálfstæðisflokkurinn hafði mikla sérstöðu þar sem byggt var upp öflugt styrktarmannakerfi sem fjármagnaði starfsemi flokksins að miklu leyti. Í dag er staðan sú að þetta fyrirkomulag er nánast liðið undir lok. Aftur á móti hafa vinstri flokkarnir aldrei haft nennu eða getu til að safna fé til reksturs utan gömlu kommanna í Alþýðubandalaginu sem skildu þetta. Þá má einnig nefna að sveitarfélögin láta fjármuni renna til stjórnmálaflokkanna,“ skrifar Gunnar I. Birgisson.
Gunnar heldur áfram: „Þrátt fyrir þessa veglegu fjárhagsaðstoð frá skattgreiðendum, yfir 700 milljónir króna, auk fjölda aðstoðarmanna, er erfitt að sjá að þetta hafi haft í för með sér aukna skilvirkni. Flestir stjórnmálaflokkanna leita nú inn á miðjuna og troða þar marvaðann. Einstaka þingmenn hafa þó ekki gleymt á hvaða gildum flokkar þeirra voru stofnaðir og nokkrir þeirra viðhalda virku sambandi við kjósendur, sem ekki er til vinsælda fallið hjá miðjumoðsfólkinu.“
Gunnar stingur víðar: „Annað sem vekur athygli er ákvarðanatökufælni stjórnmálamanna. En hvað gera menn þá? Jú, stofna nefndir, hægri-vinstri, til að komast hjá því að þurfa að taka ákvarðanir. Nær þrjú hundruð nefndir hafa verið settar á laggirnar af yfirvöldum og Alþingi á þessu kjörtímabili. Með þessu lagi veltur stjórnkerfið einhvern vegin áfram út og suður, austur eða vestur, áfram eða aftur á bak. Embættismannakerfið ræður því för og stjórnmálamennirnir láta þetta sér vel líka.“
Og hvað segir Gunnar svo um afleiðingar af þessari stöðu: „Þessi staða er grafalvarleg og ef fram heldur sem horfir mun þetta enda með skelfingu. Í alþingiskosningunum á næsta ári verður möguleiki fyrir kjósendur að veita þeim frambjóðendum brautargengi, sem hafa kjark til að tjá sig og fara eftir grunngildum síns flokks.“