„Ríkisstjórn þriggja Framsóknarflokka“
„Það er alveg ljóst að við hvert tækifæri sem þessi ríkisstjórn fær eru neytendur hlunnfarnir.“
„Fyrir tæpum þremur árum var gerður tímamótatollasamningur við Evrópusambandið til að liðka hér verulega fyrir innflutningi á landbúnaðarafurðum, á móti markaðsaðgengi fyrir okkar eigin landbúnað, mikilvægu markaðsaðgengi á erlenda markaði,“ sagði Þorsteinn Víglundsson á Alþingi, fyrr í dag.
„Á sama tíma, skömmu eftir gerð þessa samnings, var síðan tekinn til endurskoðunar búvörusamningur einmitt til að styðja sérstaklega við landbúnaðinn með hliðsjón af þeim breytingum sem felast myndu í þessu, en þegar kemur að okkar eigin efndum skal það ekki bregðast að ríkisstjórn hinna þriggja Framsóknarflokka bregður fæti fyrir á hverju einasta stigi máls, hvort sem talað er um þegar við erum dæmd vegna innflutningshafta á hráu kjöti eða annað. Þegar verið er að liðka fyrir tollkvótum varðandi kjöt á skyndilega að fara að vigta það með beini til að draga úr áhrifum þess. Og hér bólar enn og aftur ekkert á umræddu ostamáli,“ sagði hann síðan í framhaldi.
Og Þorsteinn endaði með þessum orðum: „Það er alveg ljóst að við hvert tækifæri sem þessi ríkisstjórn fær eru neytendur hlunnfarnir.“