„Það er grátlegt að horfa upp það hvernig hin hreina og græna ásýnd okkar er máluð í kolsvörtum mengandi litum,“ segir meðal annars í grein sem Eyjólfur Ármannsson. Flokki fólksins, og er að finna í Mogga dagsins.
Tilefnið er hið falsaða orkubókhald þar sem Ladnsvirkjun er stórtæk og græðir gnógt. „Sala upprunaábyrgða til ESB sýnir á pappírnum að 87% raforku á Íslandi sé framleidd með 57% jarðefnaeldsneytis og 30% kjarnorku. Vægast sagt ömurlegt er að horfa upp á þessa fölsun á raunveruleikanum. Á pappírnum fyrir árið 2021 erum við sögð hafa losað 7,2 milljónir tonna af koldíoxíði og 20.660 tonn af geislavirkum kjarnorkuúrgangi vegna sölu upprunaábyrgða. Fyrirtæki ESB skreyta sig með hreinni raforku Íslands og kola- og kjarnorkumengunin skrifast á okkur. Sýndarmennska ríkistjórnarinnar ríður ekki við einteyming. Ríkisstjórnin ætlar sér – sé eitthvað að marka stjórnarsáttmála hennar – að Ísland verði í forystu í orkuskiptum á alþjóðavísu. Er sú forysta fólgin í því að heimili landsins séu sögð nota raforku framleidda úr kjarnorku og kolum?“
Eyjólfur skrifar meira:
„Í löggjöf ESB eru reglur sem segja til um sönnun á uppruna vöru. Ætlum við að láta bjóða okkur það að heimilin okkar séu stimpluð á alþjóðavísu sem umhverfissóðar sem kaupi raforku framleidda með kjarnorku og kolum nema við greiðum hærra verð fyrir?
Við eigum að krefjast upplýsinga um uppruna þeirrar raforku sem okkur er seld. Hvar verður sú raforka til á Íslandi sem framleidd er úr kolum eða með kjarnorku? Við viljum fá svar við því.“