Oddný Harðardóttir skrifar:
Rétt í þessu voru stjórnarliðar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að fella tillögu Samfylkingarinnar um að lengja tímabil atvinnuleysisbóta. Ef tímabilið verður ekki lengt þurfa hundruðir manna að treysta á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna á næsta ári. Fjárhagsaðstoð sem er helmingi lægri en grunnatvinnuleysisbætur. Þessir sömu stjórnarliðar samþykktu í gær lækkun skatta á vaxtatekjur, arð og söluhagnað sem 10% ríkasta fólkið fær í sinn vasa. Forgangsröðunin skýr!