Guðni Ölversson skrifar:
„Bogi segir að viðræður við lánardrottna hafi ekki snúið að því að breyta skuldum þeirra í hlutafé. Þá segir hann að fyrst og fremst hafi hingað til verið rætt við íslenska fjárfesta um þátttöku í útboðinu, einkum þá sem þegar eru stærstu hluthafar félagsins. Það eru íslenskir lífeyrissjóðir.“
Þá er það staðfest. Lífeyrissjóðirnir eru stærstu hluthafar og þá eigendur, Icelandair. Eiga þeir þá flesta stjórnarmenn í fyrirtækinu okkar og réðu þeir forstjóra fyrirtækisins sem rak heila starfsstétt úr vinnunni á augabragði til að ráða aðra á lægri kjörum? Samrýmist þetta lögum og siðareglum sjóðanna.
Þú gætir haft áhuga á þessum