Áður sögðust vinstri græn vera sósíalísk. Ef ég man rétt. Nú er öldin önnur. Varaformanninum og umhverfisráðherranum er mikið í mun að leggja á nýjan skatt. Skatt sem allir borgi jafnt. Jafnvel að þau fátækustu borgi mest. Jafnvel langmest. Hann vill að lagður verði á hörku skattur á þá sem hafa ekki efni á að eiga rafmagnsbíl. Vill skattleggja bensín og díselbíla sem mest hann getur.
„Það er vissulega farið inn á það að skattlagning sem þessi getur bitnað mismunandi á fólki, það er alveg hárrétt,“ segir varaformaður Vinstri grænna.
Hann sér tækifæri fyrir fátæka fólkið. Það mun hafa þennan kost: „Markaðurinn í þessu er allur að breytast. Það eru að koma fleiri notaðir bílar inn á markaðinn og svo framvegis.“
Flóknara er þetta ekki. Skattleggja almúgann svo hann kaupi notuðu bíldruslurnar sem ríkisbubbar og efnamenn vilja ekki lengur. Bingó!