Katrín Jakobsdóttir fyrirskipaði bankaráði Seðlabankans að funda með Þorsteini Má Baldvinssyni og hans sveit í Samherja. Við vitum að Seðlabankinn varð undir í dómsmáli gegn Samherja. En hvar liggja valdmörkin?
Katrín er ráðherra Seðlabankans. Það fer ekkert á milli mála. En hvar liggja valdmörkin? Er Seðlabankinn sjálfstæður eða ekki? Eða ræður ráðherrann Seðlabankanum, þegar það hentar?
Getur ráðherra hringt í stjórn Landsvirkjunar og sagt henni fyrir verkum? Getur ráðherra hringt í Landhelgisgæsluna, lögregluna eða dómstóla og sagt hvað eigi að gera og hvenær? Eða getur samgönguráðherra hringt í forstjóra Vegagerðarinnar og gefið út fyrirskipanir um hvar beri að gera hvað?
Er ekki verið að fara inn á stórhættulegar brautir ef ríkisstofnunum er stýrt frá stjórnarráði Íslands?
Ofan á allt fékk bankaráðið frest til 7. desember til skila skýrslu um málið. Það var Katrín Jakobsdóttir sem fyrirskipaði og gaf frestinn.