Björn Birgisson setti inn skemmtilega grein á Facebook. Björn gaf leyfi til birtingar hér:
„Sko.
Stundum er eljan í sumu fólki þannig að maður botnar ekkert í dugnaði þess!
Skrapp í bíltúr vestur á Húsatóftavöll eftir hádegið, í slagveðursrigningu og hvassviðri og hugsaði á leiðinni að þetta væri nú ekkert golfveður.
En viti menn!
Á leiðinni ók ég fram á mann á reiðhjóli – með golfsett á bakinu!
Hann heitir Einar Helgi Gunnarsson og er frá Grímsey, en flutti til Grindavíkur fyrir tæpum tveimur árum og starfar sem flakari í fiskvinnslu Vísis.
Hann sagðist alltaf fara á reiðhjólinu vestur á Húsatóftavöll, tæpa 7 kílómetra hvora leið – alltaf með golfsettið á bakinu og oftast leika 18 holur!
Já sæll!
Hvers vegna ferðu alltaf á hjólinu hvernig sem viðrar?
Ég á engan bíl og er ekki með bílpróf!
Ha – ekki með bílpróf?
Nei, nei, það var enginn ökukennari í Grímsey!
Einar Helgi er fínasti golfari – með 14,4 í forgjöf og hún mun örugglega lækka í sumar!“