- Advertisement -

Pósturinn missi einkaréttinn sem fyrst

- allmargar kvartanir hafa borist vegna reksturs Íslandspósts

„Það er mat Samkeppniseftirlitsins að einkaréttinn beri að fella niður hérlendis sem fyrst,“ segir í niðurstöðum Samkeppniseftirlitsins vegna rekstur Íslandspóst.

„Íslenska ríkið er nú eina ríkið innan Evrópska efnahagssvæðisins sem ekki hefur ákveðið að fella niður einkarétt á póstþjónustu,“ segir ennfremur.

Íslandspóstur og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt vegna rekstur fyrirtækisins. Sáttin er tilkomin vegna allmargra kvartana og ábendinga sem borist hafa frá keppinautum Íslandspósts á liðnum árum.

„Með sáttinni skuldbindur Íslandspóstur sig til þess að hlíta ítarlegum skilyrðum og gera breytingar á starfsemi sinni, sem vinna gegn samkeppnishömlum sem Samkeppniseftirlitið telur að rekja megi til einkaréttar á dreifingu áritaðra bréfa undir 50 gr. og sterkrar stöðu Íslandspósts á póstmarkaði og tengdum mörkuðum. Miða þessar ráðstafanir að því að bæta samkeppnisumhverfið á þessu sviði til frambúðar. Um leið er unnið gegn því vantrausti sem grafið hefur um sig gagnvart Íslandspósti á póstmarkaði.“

Gegnsæi framvegis

„Það er bæði til þess fallið að örva samkeppni og draga úr eftirlitsbyrði. Samhliða er brýnt að sá kostnaður sem hlýst af alþjónustu á sviði póststarfsemi sé dreginn upp á yfirborðið með sem skýrustum og gagnsæjustum hætti.“

Þá segir að á vettvangi Evrópusambandsins hafi einkaréttur hins opinbera á sviði póstþjónustu verið afnuminn. „Íslenska ríkið er nú eina ríkið innan Evrópska efnahagssvæðisins sem ekki hefur ákveðið að fella niður einkarétt á póstþjónustu, eftir að ný póstlög tóku gildi í Noregi 1. janúar 2016. Í aðildarríkjum ESB féll allur einkaréttur á sviði póstþjónustu niður þann 1. janúar 2011 og í kjölfar þessa hafa nýir keppinautar haft heimild til þess að hefja samkeppni við fyrrum einkaleyfishafa í hvers konar póstþjónustu.“

Fjölmargar breytingar

„Framangreindar ráðstafanir varða annars vegar breytingar á skipulagi Íslandspóstssamstæðunnar og hins vegar skilyrði um starfshætti fyrirtækisins.

Ákvæði er varða skipulag samstæðunnar eru einkum eftirfarandi:

  • Mælt er fyrir um að tiltekin samkeppnisstarfsemi Íslandspósts verði ávallt rekin í aðskildum dótturfélögum. Í þessu skyni þarf Íslandspóstur að færa hraðpóstþjónustu sína út úr móðurfélaginu inn í aðgreint dótturfélag.
  • Mælt er fyrir um skýra aðgreiningu innan Íslandspósts á milli söluþáttar starfseminnar og kostnaðarúthlutunar. Aðgreiningin vinnur almennt gegn hagsmunaárekstrum og stuðlar að gagnsæi í verðlagningu á vörum. Er með þessu m.a. stuðlað að því að úthlutun kostnaðar félagsins vegna einkaréttarstarfsemi annars vegar og samkeppnisstarfsemi hins vegar eigi sér stað með hlutlægum hætti og raski ekki samkeppni. Aðgreiningin er m.a. tryggð með aðskilnaði í daglegri stjórnun og aðgangsstýringu í húsnæði og upplýsingakerfum.
  • Skipuð skal sérstök eftirlitsnefnd sem fylgir sáttinni eftir, tekur við kvörtunum og tekur ákvarðanir í samræmi við fyrirmæli sáttarinnar. Nefndin verður hluti af skipulagi fyrirtækisins og skipuð af Íslandspósti, en tilnefningu nefndarmanna skal bera undir Samkeppniseftirlitið til samþykktar eða synjunar. Tveir af þremur nefndarmönnum skulu vera óháðir Íslandspósti.
  • Samkeppnisstarfsemi sem er óskyld meginstarfsemi fyrirtækisins verði rekin í dótturfélagi, samkvæmt nánari fyrirmælum eftirlitsnefndar.

Skilyrði sáttarinnar er varða starfshætti Íslandspósts eru m.a. eftirfarandi:

  • Til að auka aðhald og gegnsæi skal gera sérstaka grein fyrir samkeppnisstarfsemi Íslandspósts á heimasíðu félagsins.
  • Mælt er fyrir um sérstök rekstraruppgjör fyrir hverja slíka samkeppnisstarfsemi til þess að auðvelda eftirlit með m.a. mögulegri víxlniðurgreiðslu frá einkaleyfisrekstri til samkeppnisstarfsemi. Kveðið er ítarlega á um kostnaðarviðmið og forsendur að baki þessum uppgjörum. Á sama hátt skal útbúið sérstakt afkomuyfirlit vegna einkaréttarstarfsemi.
  • Kveðið er á um hvernig bregðast skuli við tapi á samkeppnisstarfsemi innan móðurfélags, þ.á m. viðbrögð vegna yfirvofandi taprekstrar.
  • Kveðið er á um armslengd í fjármögnun dótturfélaga. Er Íslandspósti þannig m.a. gert óheimilt að veita dótturfélögum ívilnandi fyrirgreiðslu í formi lána undir markaðsvöxtum og að veita ábyrgðir og veð fyrir lánum dótturfélaga.
  • Kveðið er á um að viðskipti Íslandspósts og dótturfélaganna skuli fara fram á viðskiptalegum forsendum eins og um viðskipti milli ótengdra aðila væri að ræða. Á það m.a. við um verðlagningu á vörum og þjónustu og meðferð viðskiptaskulda.
  • Gerðar eru kröfur um rekstrar- og stjórnunarlegt sjálfstæði dótturfélaga, þ.á.m. um tiltekið óhæði í stjórnum og aðgreiningu í húsnæði og upplýsingakerfum.
  • Kveðið er á um að keppinautar Íslandspósts á sviði póstþjónustu skuli njóta sambærilegra skilmála og kjara í viðskiptum við Íslandspóst og aðrir viðskiptavinir félagsins í sömu stöðu.
  • Bann er lagt við ómálefnalegri höfnun á viðskiptum við keppinauta á sviði alþjónustu Íslandspósts.
  • Mælt er fyrir um að í dreifbýli og minni þéttbýlisstöðum sé Íslandspósti skylt að inna af hendi fjölpóstdreifingu fyrir aðra póstrekendur, á sömu kjörum og gegn sömu skilmálum og Íslandspóstur sjálfur nýtur. Skal viðkomandi verðskrá og viðskiptaskilmálar vera skýrir og aðgengilegir fyrir keppinauta.
  • Mælt er fyrir um gerð samkeppnisréttaráætlunar fyrir Íslandspóst.

Með framangreindum fyrirmælum er markvisst unnið gegn ýmsum samkeppnishömlum og vantrausti sem endurspeglast í þeim kvörtunum og ábendingum sem borist hafa á liðnum árum. Einkum er lögð áhersla á að koma í veg fyrir að samkeppnisrekstur Íslandspósts njóti með óeðlilegum hætti einkaréttarstarfsemi fyrirtækisins og dregið úr hættu á ýmsum hindrunum sem stafað geta af sterkri stöðu Íslandspósts á markaði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: