- Advertisement -

Píratar hafa nú talað í 60 klukkustundir

Nú er spurt hversu mikið úthald hafa þingmenn Pírata? Þegar þeir gefast upp heldur vinnan áfram. Kannski verða versu agnúarnir sniðnir af í nefnd.

Stundum skil ég þegar þingmenn beita málþófi. Ekki núna. Ég held að Píratar séu dæmdir til að enda sitt málþóf með öngulinn í rassinum. Ríkisstjórnin ætlar sýnilega að leyfa þeim að tala út í það endalausa. Valdið mun hafa sigur.

Þannig er þetta oftast. Andrés Ingi Jónsson upplýsti rétt áðan að þingmenn Pírata hafi nú talað alls í sextíu klukkustundir.

Ég skil að Píratar séu ósáttir við útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír eru fullkomlega sammála um að samþykkja frumvarpið. Þrátt fyrir ágallana.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú er spurt hversu mikið úthald hafa þingmenn Pírata? Þegar þeir gefast upp heldur vinnan áfram. Kannski verða versu agnúarnir sniðnir af í nefnd.

Eflaust er máli vont. Rétt eins og við mátti búast.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: