- Advertisement -

Ósanngjarnir skilmálar flugfélaga

Neytendasamtökin fjölluðu um ósanngjarna skilmála flugfélaga í síðasta tölublaði Neytendablaðsins en sum flugfélög meina farþegum að nota seinni fluglegg ferðar ef sá fyrri hefur ekki verið nýttur, sjá hér. Þetta getur t.d. gerst ef farþegi missir af flugi út eða einfaldlega flýtir ferð sinni. Þegar kemur að því að fljúga til baka hafa sum flugfélög meinað viðskiptavinum sínum að nýta seinni legginn með þeim rökum að þeir hafi ekki nýtt fyrri legginn. Þetta þykir Neytendasamtökunum ólíðandi þar sem farþegi er búinn að greiða fyrir seinni fluglegginn og á því rétt á nýta hann.

Neytendablaðið spurði bæði WOW air og Icelandair út í þessa sérkennilegu skilmála. WOW air svaraði því til að slíkir skilmálar væru ekki í gildi hjá félaginu en svör Icelandair voru óskýr og ófullnægjandi. Fréttablaðið fjallaði um málið og fékk þau svör hjá Icelandair að það væri í skoðun. Neytendasamtökin vænta þess að no show reglan verði aflögð hið fyrsta hjá Icelandair.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: