Orkuveitan hækkar heita vatnið um 97%
Það er nokkuð magnað að lesa fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um tröllvaxna hækkun á heitu vatni til gróðrarstöðvarinnar Lambhaga:
Fyrirspurnir frá Miðflokknum til Orkuveitunnar
- 1. Á hvaða grunni er sú ákvörðun byggð að hækka verð á heitu vatni um 97% þann 1. janúar n.k. til Gróðrarstöðvarinnar Lambhaga eða úr 61 kr. upp í 120 kr. fyrir rúmmetrann?
- 2. Telur Reykjavíkurborg í ljósi umhverfisumræðu það réttlætanlegt að garðyrkjustöðin seti upp kyndistöð sem kemur til með að brenna timburkurl, kolum og plasti eins og gert er í Noregi og Danmörku?
- 3. Hefur Orkuveitan látið gera úttekt á því hvort þessi hækkun standist lög sbr. hækkun á kaldavatnsgjaldi sem var úrskurðað ólöglegt gjaldárið 2013?
- 4. Stendur einnig til að hækka verð á heitu vatni um 97% þann 1. janúar n.k. til annarra fyrirtækja og heimila á gjaldsvæði Orkuveitunnar?
Þú gætir haft áhuga á þessum