Orkan okkar: Talrör fyrir ofstæki og mannhatur
Össur Skarphéðinsson skrifar:
Á hinum grandvara þræði „Orkan okkar“ sem stendur í mórölsku skjóli níu fyrrverandi ráðherra og var stofnaður af fyrrverandi þingmanni er m.a. sagt um Carl Baudenbacher (sem dæmdi Íslendingum í vil í Icesave-málinu) að hann sé „gerpi“ og “senditík frá helvíti.”
Eitt er að veita málefnalegri umræðu farveg – annað að vera talrör fyrir ofstæki og mannhatur. Ég velti fyrir mér hvort aðstandendur „Orkunnar okkar“ hafi enga sómakennd?