Neytendur Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Ora um innköllun á öllum framleiðslulotum af Ora Graflaxsósu vegna framleiðslugalla. Framleiðslugallinn felst í því að áferð sósunar er ekki í lagi.
- Vöruheiti: Ora Graflaxsósa
- Vörunúmer: 9423400
- Strikamerki: 5690519001046
- Nettóþyngd: 170 g
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Dreifing: 10-11, Fjarðarkaup, Bónus, Hagkaup, Iceland, Krónan, Nóatún, Kjarval, Kaskó, Kaupf.Skagfirðinga, Kostur, Nettó, Strax, Úrval, Versl.Einars Ólafss., Mini Market, Versl.Hlíðarkaup, Víðir, Þín verslun, Versl.Rangá, Versl.Urð, Versl.Virkið, Versl.Kvosin, Versl.Kassinn, Versl.Voginn, Versl.Nesbakki, Kostur Njarðvík, Sunnubúðin, Albína og Kjöthöllin.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri ORA í síma 522 2773 eða á netfangið helgab@ora.is.