Ólafur Jóhannesson.

Fréttir

Óli Jó rekinn sem þjálfari FH: Heimir Guðjónsson og Davíð Þór í sigtinu

By Ritstjórn

June 17, 2022

Ólafur Jóhannesson er ekki lengur þjálfari karlaliðs FH í fótbolta; hann og aðstoðarmaður hans, Sigurbjörn Hreiðarsson, voru látnir taka pokann sinn eftir jafntefli gegn Leikini, 2-2, í gærkvöld.

Sigurbjörn Hreiðarsson var aðstoðarmaður Óla Jó.

Óhætt er að segja að gengi FH-inga í sumar hafi ekki verið upp á marga fiska; liðið er með átta stig eftir fyrstu níu umferðirnar.

Staða FH í dag er gjörbreytt miðað við að félagið var lengi á toppnum í íslenskum fótbolta; félagið raðaði inn titlunum á árunum 2004 til 2016 og gerði vel í Evrópukeppnunum.

Heimir Guðjónsson var hjá FH sem leikmaður og þjálfari á árunum 1999 til 2017.

Eftir að FH rak Heimi Guðjónsson eftir sumarið 2017, þar sem félagið náði „aðeins“ þriðja sæti í deild og öðru sæti í bikar, réð liðið Ólaf Kristjánsson til að taka við þjálfuninni.

Ólafur Kristjánsson var við stjórnvölinn hjá FH á árunum 2017 til 2020.

Síðan þá hefur leið FH aðeins legið niður á við – nokkrir þjálfarar hafa komið og farið eftir að Ólafur var rekinn fyrir um tveimur árum; og nú er stóra spurningin:

Hver tekur við keflinu?

Samkvæmt heimildum Miðjunnar eru FH-ingar að vonast til þess að ná að landa Heimi Guðjónssyni á nýjan leik, en hann er samningsbundinn Val.

Hins vegar hefur gengið illa hjá Val í sumar og mikið rætt um að Heimir verði látinn fara fljótlega. Heimir sagði nýlega í viðtali að hann gæti vel hugsað sér að taka á ný við FH.

Davíð Þór Viðarsson.

Aðrar heimildir Miðjunnar herma að Davíð Þór Viðarsson muni taka við sem þjálfari FH.