Auðvitað er það eftirtektarvert þegar þingmaður segir af sér sem þingflokksformaður. Því kemur ákvörðun Óla Björns á óvart. Hvað ætli valdi? Mogginn rifjar upp að þetta skrifaði Óli Björn í sumar:
„Ráðherrann hefur kastað blautri tusku í andlit allra þingmanna samstarfsflokka ríkisstjórnarinnar. Það er pólitískur barnaskapur að halda að slíkt hafi ekki áhrif á samstarfið innan ríkisstjórnarinnar. Eitt er að minnsta kosti víst: Traust milli matvælaráðherra og stjórnarþingmanna er lítið og það mun hafa áhrif á samstarf þeirra á komandi mánuðum.“
Þetta sagði Óli Björn um ákvörðun Svandísar að stöðva hvalveiðarnar í júní. Víst má telja að eftirgjöf Svandísar hafi ekki linað kvalir Óla Björns. Hér sést að framundan er harður vetur og ekki er útilokað að óskir margra um stjórnarslit verði þegar hnúturinn harðnar enn frekar.