Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, er harður andstæðingur Hildar Björnsdóttur borgarfulltrúar. Það sama á við um marga Sjálfstæðismenn í hans aldursflokki. Vilhjálmur skrifar í Moggann í dag. Vilhjálmur byrjar grein sína á að upplýsa okkur um hversu veikur foringi Eyþór Arnalds hefur verið – eða hversu erfið Hildur hefur verið honum.
„Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn hefur lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér til framboðs við borgarstjórnarkosningarnar í maí nk. Starf oddvita flokksins í borgarstjórn á kjörtímabilinu hefur ekki reynst auðvelt. Augljóst er að hann hefur ekki haft alla borgarfulltrúa flokksins að baki sér í nokkrum mjög veigamiklum málum, nánast samfellt allt kjörtímabilið. Þar ber hæst málefni borgarlínu og ýmis önnur samgöngumál í borginni, framtíð innanlandsflugsins á Reykjavíkurflugvelli og einstaka miðborgarmál, sem sagt engin smámál. Nýlega lýsti borgarstjóri því yfir að Reykjavíkurflugvöllur yrði lagður niður árið 2032. Hann nefndi ekki hvað yrði þá um innanlandsflugið því ljóst er að ekki verður byggður flugvöllur í Hvassahrauni,“ skrifar Vilhjálmur.
„Ég tel augljóst að sjálfstæðismenn í Reykjavík muni ekki sætta sig við að þeir einstaklingar sem kosnir verða borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum verði áfram klofnir í afstöðu sinni í veigamiklum borgarmálum næstu fjögur árin eins og verið hefur nánast samfellt allt núverandi kjörtímabil,“ skrifar Vilhjálmur.
Eldri flokknum í Valhöll er mjög í nöp við Hildi sem og Katrínu Atladóttur, sem ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri. Segja þær hafa gengið í takt við Dag B. Eggertsson og hans fólk. Þeir hafa rætt um að réttast væri að reka þær úr flokknum.
Það verður spenna í Valhöll.
-sme