- Advertisement -

Ólafur hýsir Miðflokkinn

Ólafur kom einnig að heimili Framsóknarflokksins.

Suðurlandsbraut 18.
Hér er aðsetur Miðflokksins. Húsið er í eigu félags Ólafs Ólafssonar.
Framsóknarhúsið.
Ólafur seldi Framsóknarflokknmum húsið.

Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur opnað höfuðstöðvar sínar þar sem verður fundað stíft næstu daga. Meðal annars verður raðað upp á lista flokksins í Reykjavík, en ákveðið hefur verið að Vigdís Hauksdóttir leiði lista flokksins í borginni.

Gott og vel með það. Miðflokkurinn hefur nú opnað höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík, í stórhýsi Ólafs Ólafssonar, eða félags í hans eigu. Til stendur, eða hefur hið minnsta staðið til, að breyta húsinu í stærðarinnar hótel. Ekki hefur komið fram hvort þau áform hafi verið lögð til hliðar eða ekki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Framsóknarflokknum, þar sem þau störfuðu af ákveðni, bæði Sigmundur Davíð og Vigdís, hefur ekki tekist að hreinsa sig af grun um að Ólafur Ólafsson, eða félag í hans eigu, hafi allt að því gefið Framsóknarflokknum húsið við Hverfisgötu, þar sem skrifstofa sem og félagsaðstaða flokksins er.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: