Nýleg gögn frá Eurostat um framfærslukostnað heimilanna á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Þar kemur fram að Ísland og Sviss hafa skipst á að hafa hæsta framfærslukostnaðinn á síðustu árum.
Algengar neysluvörur heimilanna eru þannig óvenju dýrar hér á landi. Það eina sem er með ódýrara móti á Íslandi er rafmagn og húshitunarkostnaður. Lágtekjuhópar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir háu verði daglegra nauðsynja, svo sem matvöru og húsnæðis.
Þetta kemur fram í Kjarafréttum Eflingar. Hér er hægt að lesa Kjarafréttirnar.