…hrekur staðhæfingar þeirra um slysatölur, sem í raun hafi lækkað um 8% árið 2019, en á sama tíma hafi iðgjöld hækkað um 6%.
Árni Gunnarsson skrifar:
Í síðasta fréttablaði Félag íslenskra bifreiðareigenda er athyglisverð
grein um verðlagningu íslenskra tryggingafélaga á bílatryggingum. Blaðið birtir
línurit um hækkanir á flokki trygginga og segir: „Stóra myndin á þessari síðu
segir meira en þúsund orð um gegndarlaust okur tryggingafélaganna á
bíleigendum. Þar sést hvernig vísitala bílatrygginga hefur flogið fram úr
vísitölu neysluverðs“.
Blaðið bætir svo við: „Framúrakstur iðgjalda ábyrgðartrygginga ökutækja hófst fyrir alvöru 2014. Á hverju ári eftir það hækkuðu
bílatryggingar langt umfram vísitölu neysluverðs. Hlutfallslega hækkuðu
bílatryggingar um 84% frá 2008 til 2019 meðan vísitala neysluverðs hækkaði um
42%. Með öðrum orðum, á þessum 10 árum hækkuðu bílatryggingar helmingi meira en
neysluvörur almennings.“
Síðan ræðir blaðið „ótrúverðugar skýringar tryggingafélaga“ og hrekur staðhæfingar þeirra um slysatölur, sem í raun hafi lækkað um 8% árið 2019, en á sama tíma hafi iðgjöld hækkað um 6%.
Þessi grein er athyglisverð og ættu sem flestir bíleigendur að lesa hana. Blaðið leggur til, að allir bíleigendur leiti eftir tilboðum í tryggingar sínar. Það eitt geti skapað samkeppni um lægri iðgjöld.
Blaðið bendir einnig á gríðarlegan arð tryggingafélaganna á síðustu árum.