Fréttir

Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn!

By Miðjan

January 10, 2025

Hvatning til ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja- Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn!

Með samstilltu átaki tókst að gera tímamótakjarasamninga í upphafi síðasta árs, Stöðugleikasamninga með skýr markmið.

Stöðugleikasamningarnir höfðu það markmið að stuðla að minni verðbólgu og lækkun vaxta, fyrirtækjum og heimilum til hagsbóta. Þeir voru gerðir í því trausti að aukin verðmætasköpun stæði undir þeim kostnaðarauka sem samningarnir fólu í sér fyrir atvinnulífið og því er mikilvægt að huga sérstaklega að rekstrarskilyrðum atvinnulífs og einstaka atvinnugreina.

Áherslur í aðdraganda og kjölfar samninganna birtast okkur nú síðast í megináherslum nýrrar ríkisstjórnar um stöðugleika. Samstaða á meðal fyrirtækja, stjórnvalda og almennings hefur þegar skilað því að verðbólga hefur hjaðnað og vextir eru byrjaðir að lækka.

Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga á hinum almenna vinnumarkaði hvetja ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til þess að láta ekki deigan síga, nú þegar loks er farið að sjást til lands í þessu krefjandi verkefni.

Samningsaðilar hvetja ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til þess að leggjast á eitt við að tryggja stöðugleika á komandi misserum.

Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga skora sameiginlega á ríki, sveitarfélög og fyrirtæki landsins til þess að styðja við markmið kjarasamninga með því að halda aftur af gjaldskrár-, skatta- og verðhækkunum eins og þeim er frekast unnt, og enn fremur lágmarka launaskrið og gæta vel að skilyrðum til verðmætasköpunar á Íslandi.

Það blasir við að mesti ávinningur heimila, launafólks og fyrirtækja er að tryggja verðstöðugleika sem tryggir áframhaldandi minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.