Förðunarbloggarar eru alltaf að leita að nýju viðfangsefni til að halda sér ferskum. Ellie Costello er 19 ára gömul bresk stúlka, sem datt þessi sumarlega förðun í hug. Hún notar til þess lifandi blóm í bland með gerviblómum. Ellie hefur ekki hlotið neina menntun í förðun og er hún sannkölluð listakona á þessu sviði.