Stjórnmál

„Nú hafa vinstri menn yfirtekið Viðreisn“

By Ritstjórn

June 25, 2021

„Það er öllum ljóst að sú staðreynd að Benedikt Jóhannessyni, stofnanda Viðreisnar og fyrrverandi þingmanns og fjármálaráðherra, var ekki hafnað á grundvelli persónu hans eða persónulegs ágreinins, heldur hlýtur hugmyndafræðilegur ágreiningur að vera til staðar innan flokksins,“ skrifar Guðbjörn Guðbjörnsson. Hann skrifar einnig:

„Fyrir kjósendur er ljóst að flokkurinn hefur fyrir löngu tekið skarpa vinstri beygju. Þetta kemur skýrt fram í áherslum flokksins eftir að samstarfið við sósíaldemókrata og stjórnleysingja í Pírötum hófst í Reykjavík. Stefnuskráin hefur tekið breytingum og er í takt við stefnu Besta flokksins og Bjarta framtíð.

Þeir sem stofnuðu flokkinn voru miklu lengra til hægri í stjórnmálum og líktist stefna flokksins þá stefnu annarra frjálslyndra hægri flokka á borð við Frjálslynda lýðræðisflokkinn (Freie Demokratische Partei/FDP) í Þýskalandi og marga fleiri slíka flokka í Evrópu og Demókrata í Bandaríkunum.

Íslendingar almennt þekkja lítið til stjórnmála í öðrum löndum (hálfgerðir pólitískir analfabetar) og því kannski ekki nema von að ágreiningur sé útskýrður sem svo að hann sé persónulegur. Í flestum stjórnmálaflokkum eru a.m.k. 2 armar sem takast á um völdin. Nú hafa vinstri menn yfirtekið Viðreisn,“ skrifar Guðbjörn.