Davíð Oddsson er maður fortíðarinnar. Sættir sig ekki við breytingar. Eitt að versta sem hann veit um er núverandi forysta launþega. Nýja fólkið stingur niður fæti. Davíð er í hópnum sem fann endalaust að því að Ragnar Þór Ingólfsson sagði fjárfestingu í Icelandair ekki góða. Það fannst Mogga og Borgartúninu óviðeigandi.
Í Staksteinum dagsins reiðist Davíð vegna þess að forseti ASÍ spyr talsmenn stjórnmálaflokkanna um stefnu þeirra fyrir kosningarnar. Drífa Snædal fékk Gunnar Smára frá Sósíalistaflokknum. Það var of stór skammtur fyrir Davíð. Hann hlustaði samt. En þótti þetta allt aldeilis óviðeigandi.
„Sum verkalýðsfélög eru að hita upp fyrir alþingiskosningarnar í haust og hyggjast að því er virðist taka þátt í þeim með áður óþekktum hætti. Drífa Snædal, forseti ASÍ, er til að mynda farin að senda út viðtöl á vef samtakanna og fyrsta viðtalið var huggulegt drottningarviðtal við aðaleiganda Sósíalistaflokksins þar sem hann fékk að fabúlera á sinn hátt undir mikilli velþóknun spyrilsins.“
Bíðum aðeins við. Hvað sagði Davíð um Gunnar Smára? „Aðaleiganda Sósíalistaflokksins.“ No, það er bara svona. Var Davíð þá til dæmis aðaleigandi Sjálfstæðisflokksins, eða hélt hann að bara?
Áfram með pirringinn í Davíð. Nóg er af honum:
„Svo sendi Drífa í gær frá sér pistil þar sem hún ítrekaði þá afstöðu að það væri nóg til og sýndi því jafn lítinn skilning og áður að framleiða þurfi verðmætin áður en þau verði til skiptanna.
Þessi pistill mun líka hafa átt að vera svar við þeirri ábendingu Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, að launahækkanir síðustu ára hefðu verið „úr kortunum miðað við samkeppnislöndin“. Hann nefndi að hér hefði launahækkunin verið 10% en 0-2% í samkeppnislöndunum, sem hann sagði gera samkeppnina „krefjandi“ fyrir Icelandair. Það er örugglega ekki ofmælt.“
Er víst að mat Boga Nils á stöðunni sé merkara en mat Drífu. Það held ég ekki. Svo steig Drífa yfir á heilagt sprengjusvæði Davíðs. Lesið:
„Loks hjólaði Drífa í Ísrael fyrir að verja sig gegn árásum Hamas og við það vakna spurningar. Hvað mundi Drífa vilja að gert væri ef hún byggi í Ísrael og sætti árásum hryðjuverkasamtakanna?
Og: Hvernig gagnast það launamönnum á Íslandi að ASÍ taki þátt í baráttu með tilteknum öflum fyrir botni Miðjarðarhafs? Nú eða blandi sér í innanlandspólitík? Eru allir sem greiða til ASÍ á einu máli í stjórnmálum?“
Angans karlinn.
-sme