Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar:
Icelandair gerir stórkostlega atlögu, með aðstoð og blessun Samtaka atvinnulífsins, að grundvallarréttindum vinnandi fólks á Íslandi og kemst upp með það. Og ekki aðeins komast milljón-króna mennirnir upp með lögbrotið heldur fá klapp á bakið frá stjórnvöldum.
„Hvernig líður þér, kæri vinur?“
Konu hefur orðið óglatt yfir minna.
Af efling.is
Stjórnendur Icelandair eru nýbúnir að brjóta lög og rótgrónar hefðir á íslenskum vinnumarkaði. Þeir notuðust við ólöglegar uppsagnir til að nauðbeygja flugfreyjur í kjarabaráttu og hótuðu að smíða nýtt gervistéttarfélag fyrir starfsfólk sitt.
Aldrei í öllu þessu ferli heyrðist píp í íslenskum stjórnvöldum. Nú þegar þessum aðförum er lokið á að verðlauna Icelandair með ríkistryggðum lánveitingum. Forstjóri Icelandair birtist rogginn í fjölmiðlum, ánægður með fenginn.
Styður ríkisstjórnin þessa stjórnendur og umgengni þeirra við vinnumarkaðinn?