Athygli hefur vakið að norsk loðnuskip hafa landað á Íslandi undanfarið í stað þess að halda til Noregs með fenginn. Hafa þau t.d landað á Neskaupsstað og hefur loðnan farið í bræðslu.
Á vef Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað má sjá að nork loðnuskip hafa verið að landa þar undandarið og hefur afli farið í fiskiðjuverið til bræðslu. Þá hafa skip einnig þurft á viðgerðum að halda.
Norsku skipin veiða loðnuna í nót og er loðnan sem þau koma með heldur stærri en loðnan sem veidd er í troll. Loðnuvertíðin hefur byrjað hægt hjá íslensku skipunum.