Móðgunargirnin er merkileg. Sjálfstæðismenn í Norðaustri eru með verki. Allt vegna þess að Njáll Trausti Friðbertsson, annar þingmaður flokksins í kjördæminu, opinberaði á sama fundi og Kristján Þór Júlíusson tilkynnti loks að komið væri að leiðarlokum hjá honum, að hann gengi með ráðherrann í maganum og vildi fá fyrsta sætið í komandi kosningum. Þetta þótti ekki við hæfi. Ekki frekar en að prumpa við matarborðið.
„Eftir því var tekið á fundinum, að Njáll Trausti Friðbertsson, næsti maður á listanum síðast og 6. þingmaður kjördæmisins, beið ekki boðanna eftir yfirlýsingu Kristjáns Þórs við að kynna framboð sitt í efsta sætið, sem var kurteislega tekið, þótt haft væri á orði að hann hefði mátt eftirláta oddvitanum þennan dag,“ segir í Mogganum um þennan einstaka atburð í sögu Sjálfstæðisflokksins.
Viðbrögðin sýna að Njáll Trausti kann ekki leikinn og varð þess vegna heimaskítsmát um helgina. Hann á því enga möguleika á verðandi ráðherrasæti. Meðal hugsanlegra arftaka Kristjáns Þórs stendur Jónas Þór Guðmundsson allra manna best. Trúnaðarvinur Bjarna Benediktssonar. Jónas Þór er til að mynda stjórnarformaður Landsvirkjunar. Í umboði Bjarna.