Úr Mogganum í dag: „Ástandið er grafalvarlegt og hefur ítrekað bitnað á sjúklingum sem þangað hafa þurft að leita. Dæmi eru um að sjúklingar hafi verið sendir heim af bráðadeild spítalans nú um jólin þar sem þeir létust nokkrum klukkustundum síðar,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins í gær. Mál sjúklingsins sem hann vísar í hefur verið tilkynnt embætti landlæknis og lögreglu og er rannsakað sem alvarlegt atvik. Guðmundur Ingi segir neyðarástand ríkja á Landspítala-háskólasjúkrahúsi vegna mikils álags og að hann hafi haft samband við formann velferðarnefndar Alþingis vegna ástandsins.
„Við höldum fund um miðjan mánuðinn til að fara yfir stöðuna,“ segir Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, sem ræddi við Guðmund Inga í gærmorgun. „Við erum fyrst og fremst að leita upplýsinga og það er ekki fyrr en eftir það sem ég get haft skoðanir á því hver næstu skref verða og hvað hefur þegar verið gert.“
Þetta er merkilegt. Einn nefndarmanna velferðarnefndar hefur hlustað eftir því sem starfsfólk og sjúklingar hafa sagt um jafnvel lífshættulegt ástand á Landspítalanum. Formaður nefndarinnar, og vel að merkja flokkssystir heilbrigðisráðherra, sér ekki ástæðu til að nefndin komi saman fyrr en um miðjan janúar. Nefndin reddar ástandinu ekki einn, tveir og þrír. Það kann samt að vera betra að þingmenn séu sem best upplýstir hverju sinni. Það þykir eflaust flestum. En ekki Framsókn.