Nammidagur í Heilsuhúsinu á laugardögum í sumar!
Á laugardögum í sumar býður Heilsuhúsið 50% afslátt af lífrænum ávöxtum og grænmeti.
Við hjá Heilsuhúsinu ætlum að bregðast við ákalli samfélagsins og bjóða 50% afslátt af lífrænum ávöxtum og grænmeti alla laugardaga í sumar. Með þessu vill Heilsuhúsið leggja sitt af mörkum til að efla heilsu þjóðarinnar. Við teljum þetta okkur ljúft og skylt og í raun vera okkar samfélagsleg ábyrgð.
„Sykurmagn á hvern Íslending hefur verið á bilinu 45 kíló til 48,3 kíló á ári, að undanskildu árinu 2014, eina heila árinu sem hærri álögur voru á sykri og sykurvörum. Framboðið minnkaði úr 48,3 kg/mann/ár árið 2013 í 41,8 kg/mann/ár árið 2014.“ Heimild: visir.is/Landlæknir
Opnunartímar Heilsuhússins á laugardögum:
- Heilsuhúsinu á Laugavegi 11:00-16:00
- Heilshúsinu í Kringlunni 10:00-18:00
- Heilsuhúsinu á Smáratorgi 12:00-18:00
- Heilsuhúsinu á Akureyri 10:00-17:00
Takk Heilsuhúsið fyrir að bregðast svona vel við.