Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, gerir upp stöðu íslensks launafólks í Mogganum í dag. Í lok greinar sinnar flytur hann okkur þann boðskap að hér sé allt til mestu fyrirmyndar. Hann skrifar:
„Íslenskt launafólk fær stærri hluta af virðisauka í samfélaginu en launafólk í nokkru öðru iðnvæddu ríki, eða 63%. Meðallaun á Íslandi eru þau næsthæstu í heimi, lágmarkslaun þau þriðju hæstu í heimi, tekjujöfnuður er sá mesti í heimi og eignajöfnuður er að aukast. Við borgum há laun á Íslandi og viljum hafa það þannig. En hóflegar launahækkanir innan þess svigrúms sem er til staðar eru lykilforsenda þess að við getum gert það áfram.“