„Von á Kaupþingsskýrslu í janúar, sagði seðlabankastjóri í RÚV-fréttum kvöldsins um skýrsluna sem hann hefur lofað árum saman um meint lögbrot í bankanum í október 2008. Meint brot fyrntist í október 2018. Þetta kallar maður næmt tímaskyn.“
Þetta skrifaði Þorvaldur Gylfason prófessor eftir að hafa horft á sjónvarpsfréttirnar í gærkvöld.
Þar kom þetta fram: „Við erum núna búin að fá svar sem að svaraði kannski ekki að öllu leyti, en að einhverju leyti, og það svar mun verða hluti af skýrslunni. Og ég er að vona það að það verði hægt, það kannski næst ekki fyrir áramót, en mjög fljótlega á nýju ári. Það er mín von en ég veit ekkert hvað gerist, kemur upp á,“ sagði Már í skriflegu svari sínu til RÚV og birt var í gær.
Sem sagt; Már Guðmundsson seðlabankastjóri vonast til að skýrsla um 500 milljóna evra lánið sem bankinn veitti Kaupþingi sama dag og neyðarlögin voru sett árið 2008 verði birt í næsta mánuði. Sökin í málinu, sé hún einhver, rann sem sagt út fyrir fáum vikum.