- Advertisement -

MYNDBAND – Agnes fann fláð lamb undir eldhúsglugganum: „Við erum meira en orðlaus!“

Við Agnesi Klöru Jónsdóttur blasti ófögur sjón er hún kom útaf bæ sínum í Fellabæ við Egilsstaði í ´gærmorgun. Þar blasti við henni lambshræ sem búið var að flá svo faglega að heimilisfólkið grunar dýraníðinga og ætlar að tilkynna málið til lögreglu í dag.

Agnes sagði frá hræðilegri upplifun sinni í samfélagi sauðfjárbænda á Facebook og birti þar jafnframt þetta myndband af hinu fláða lambi. Rétt er að vara við myndbandinu sem er ekki fyrir viðkvæma:

„Við erum meira en orðlaus en þessi sjón blasti við okkur í morgun. Við viljum ekki trúa að ásetningurinn sé það mikill að fólk keyri upp afleggjara heim að bæ en hræið lá niðrá miðju túni hjá okkur beint fyrir utan eldhúsgluggan. Engin Tófa svona fær og snyrtileg við verkið,“ segir Agnes.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fjölmargir meðlimir hópsins bregðast reiðir við frásögninni. Lilja nokkur er ein þeirra. „Mikið ef ég reið fyrir ykkar hönd. Hvað er eiginlega að hjá fólki!!!!,“ spyr hún.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: