Þórhildur Sunna Ævarsdóttir:
„Framkoma Icelandair gagnvart starfsfólki sínu er svívirðileg og á ekki að líðast á íslenskum vinnumarkaði. Ég tek heils hugar undir með Drífu Snædal sem segir m.a.:
„Icelandair getur ekki búist við því að njóta áfram þeirrar velvildar sem félagið hefur notið í íslensku samfélagi,“ segir hún.“
Ætlar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að horfa upp á viðlíka djöfulsins níðingsskap aðgerðarlaus?
Ætla flugmenn í alvöru að ganga í störf starfssystkina sinna til áratuga?
Ætla lífeyrissjóðirnir að sitja hjá?
Flugfreyjur og þjónar eiga stuðning minn allan í kjarabaráttu sinni við fyrirtæki sem augljóslega svífst einskis.
Ábyrgð stjórnvalda er mikil í aðstæðum sem þessum. Hingað til hafa hagsmunir hluthafa, fyrirtækja og fjármagnseigenda fengið að ráða viðbrögðum ríkisstjórnarinnar. Sameinuð verkalýðsforysta og víðtækur stuðningur almennings við baráttu flugfreyja mun skipta sköpum. Vonandi verður það nóg til þess að ríkisstjórnin kveiki á siðferðisvitanum.