Staksteinar dagsins í Mogganum byrja svona: „Fréttir berast skelfilega oft á ári um mannskæðar skotárásir á fjölmennum stöðum í Bandaríkjunum, í skólum, kirkjum, verslunarmiðstöðvum eða útitónleikum.“
Mogginn er á því að ekki gæti jafnvægis í fréttaflutningi af slíku. Meira sé gert úr fjöldamorðunum þegar það „hentar“ og minna þegar svo er ekki.
„Af þessu verða eðlilega miklar umræður og fá þær oft á sig pólitískan blæ. En það sérkennilega er að fréttaumfjöllunin og pólitískar deilur virðast eingöngu bundnar við flokkaða atburði, enda yrði að öðrum kosti að fjalla um hið sama margoft á dag. Örfá atvik fá beina útsendingu helstu stöðva og iðulega einnig helstu miðla t.d. í Evrópu.“
Næst er „bent“ á að ástandið sé verst þar sem Demókratar fara með stjórn og þar sem reglur um byssueign eru hvað mestar og harðastar.
„En annað af sama toga fær litla umræðu enda svo hvunndagslegt. Ef grafið er eftir því þá sést að um síðustu helgi urðu 53 skotárásir í Chicago. Sjö lágu í valnum og 46 voru særðir.
Engin frétt á landsvísu, hvað þá á heimsvísu. Enda eru þegar skráðar á þessu ári 1.643 skotárásir í þessari einu borg og eru 278 þegar fallnir og 1.365 særðir. Aldrei ávarp eða heimsókn enda myndi forsetinn ekki gera neitt annað.
Demókratar hafa stjórnað borg og ríki lengi og reglur um byssueign eru harðari en annars staðar vestra!“