Miðflokkurinn magalendir hjá MMR
Ekki er staða Miðflokksins burðug í nýjustu könnun MMR. Þetta kemur skýrt fram í annars tíðindalítilli könnun.
Til hvaða bragðs munu þeir taka? Guðni Ágústsson skrifaði í Mogga gærdagsins:
„Miðflokkurinn var í upphafi hálfur Framsóknarflokkurinn, en nú er byrjaður að þyngjast róðurinn. Sigmundur Davíð liggur undir feldi og hugsar djúpt hvaða mál trompar baráttuna, meðan karlarnir hans brýna vopnin. En Sigmundur Davíð er auðvitað flokkurinn og hefur keyrt Miðflokkinn nokkuð fast til hægri, og sækir að Sjálfstæðisflokknum.“ Sé þetta allt rétt verður Sigmundur Davíð að fara að spýta í lófana.
Þú gætir haft áhuga á þessum