Miðaldra hvítur karl, glæsileg kona og sætasti krakkinn
Ragnar Önundarson skrifar:
Stjórnmálaflokkar verða eins og önnur félög að vera stjórnhæfar
einingar. Þeir eru mikilvægar stofnanir lýðræðisins og því stórskaðlegt ef þeir
ná ekki að sinna verkefnum sínum vel. Með prófkjörunum færðist val frambjóðenda
frá staðbundnum flokksdeildum til kjósenda flokkanna. Þetta er valddreifing og
margt gott við það. Vald flokksforystunnar rýrnaði að sama skapi. Hollustan
færðist til. Þeir sem hafa „sjónvarps-útlit“ og sérstaklega þeir sem hafa mikið
sést á skjánum njóta forskots. Hætt er við að fólk
sem er „útlitsdekrað“ hafi hærri hugmyndir um sjálft sig en innistæða er fyrir,
enda hefur slíku fólki vegnað misjafnlega í pólitík.
Áður fyrr hafði Sjálfstæðisflokkurinn mikla „breidd“ og náði því
yfir stórt bil á hinu pólitíska litrófi. Öflugasti stjórnmálamaðurinn var
kjörinn formaður og sá næst-öflugasti, oftast yngri og „upprennandi“, var
kjörinn varaformaður. Þeir stóðu vörð um „breiddina“. Ekki var reynt að friða
einstaka hópa með því að stinga ,,dúsu” upp í þá. Menn voru í pólitík.
Núna hefur þetta breyst. Miðaldra, hvítur, kristinn karlmaður,
helst reffilegur og peningalegur, er formaður. Glæsilegasta konan er
varaformaður og sætasti krakkinn ritari. Þetta er afleiðing af valdatilfærslu
prófkjöranna. Sérstakir hópar heimta fulltrúa sína í forystuna. Afleiðingin er
sú að formaður nýtur ekki hins uppbyggilega aðhalds sem öflugur varaformaður
mundi veita í samstarfi þeirra tveggja. Formaðurinn er með gagnrýnislausa
aðdáendur sér við hlið. Kjósendur skynja ekki samstíga öflugt afl heldur
dreifða krafta og máttleysi.
Nýlega var gengið til kosninga í Reykjavík. Þar var þessi
formúla um forystu reynd enn á ný. Foringinn valdi tvær ungar glæsilegar konur
sér við hlið, lítt reyndar í pólitík. Reynsluboltarnir voru ekki bara látnir
rýma til fyrir hinni heilögu þrenningu með því að færa þá aftar, nei, þeir voru
settir alveg út ! Hvernig gekk þetta svo? Formúlan skilaði ekki því sem vonast
var til.
Það virðist vera í gangi einhver „auglýsingamennska“. Grænmeti selst best „ferskt“. Sjálfsagt eru það „almannatenglarnir“ sem hafa sagt Flokknum að frambjóðendur þurfi að vera ferskir, eins og grænmeti. Þetta eru þeir sömu sem ráðlögðu að steypa flokknum í skuldir með auglýsingum.
Greinin var sótt á Facebooksíðu Ragnars.
Afritaðu og límdu þessa vefslóð í WordPress vefinn þinn til þess að fella inn
Afritaðu og límdu þennan kóða yfir í vefinn þinn til þess að fella inn