Örn Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er með skemmtilega athugasemd frá borgarstjórnarfundi gærdagsins. Hann skrifar:
„Meirihlutinn kaus gegn eigin tillögu! Við lögðum fram tillögu um að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði yrðu lækkaðir úr 1,65% í 1,60% með gildistöku 1. janúar 2022. Meirihlutinn felldi þá tillögu. Ég læt skot af Meirihlutasáttmála þeirra fylgja með. Þetta var þeirra eigin tillaga!! Þetta er skrýtin pólitík.“
Umræða á Facebook í framhaldi:
Líf Magneudóttir: „Vissi ekki að þessi fundur væri lok þessa kjörtímabilsins?“
Þú gætir haft áhuga á þessum
Örn Þórðarson: „Líf – Kom þessi lækkun fram í 5 ára áætluninni?“