Þetta bætist við sífelldar þrengingar reglugerða dómsmálaráðherra.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, skrifar á Facebook:
Í dag varð ég vitni að óvenju harkalegum viðbrögðum lögreglu, gagnvart hóp í afar veikri stöðu, sem hugðist tjalda á Austurvelli og vekja athygli á málstað sínum.
Ég minnist ekki að tiltölulega fámennum mótmælum hafi áður verið mætt með slíkum aðgerðum. Ég sá a.m.k. ekkert sem gaf tilefni til slíks.
Þetta bætist við sífelldar þrengingar reglugerða dómsmálaráðherra í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og boðað frumvarps hennar um sömu hópa, sem eru mikil afturför.
Er nema von að maður spyrji á hvað leið stjórnvöld eru og hvort hún sé farin með samþykki VG?