Borgarfulltrúarnir Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokki og Heiða Björg Hilmisdóttir eru ósammála um hvort gera eigi bólusetningar barna að skilyrði fyrir aðgengi að leikskólum borgarinnar.
Hildur er með: „Leikskólar eru reknir af sveitarfélögum og mér finnst ágætt að höfuðborgin fari fram með góðu fordæmi og setji þessar reglur fyrst. Svo væri auðvitað fínt ef fleiri myndu fylgja í kjölfarið. Ég veit ekki hvort mér finnist rétt að setja einhverja bólusetningaskyldu. Hins vegar er hægt að gera það að skilyrði að börn sem ganga í leikskóla Reykjavíkurborgar og umgangast önnur börn á hverjum degi fái almennar bólusetningar.“
Heiða Björt er á móti: „Mín skoðun er að við eigum ekki að svipta börn tækifæri á menntun á grundvelli ákvarðana foreldra. Alþingi getur skyldað fólk til að bólusetja öll börn eða metið það sem vanrækslu ef því er ekki sinnt. En að refsa barni fyrir slíkar ákvarðanir finnst mér afleit hugmynd og afskaplega gamaldags leið til að refsa fólki til hlýðni.“