Með og á móti verðtryggingunni
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudag, aðspurður ekki vilja banna verðtryggingu alfarið. Rétt sé að takmarka hana á neytendalánum og rétt sé að afnema verðtryggð lán, með jöfnum greiðslum, til 40 ára.
Þetta var rætt í ljósi þess að meir en tvö af hverjum þremur nýjum lánum til húsnæðiskaupa eru vertryggð.
Meðfylgjandi er hljóðbrot af ummælum Bjarna.
Stjórnarþingmaðurinn Willum Þór Þórsson gerði verðtryggingu að umtalsefni á Alþingi fyrir örfáum dögum. Hann sagði meðal annars:
„Verðtryggingin blekkir skuldarann og það er ólíðandi að setja fólk í þann skuldaklafa sem fylgir því að geta ekki séð fyrir þann kostnað sem fylgir því að taka lán. Slíkt ástand mun viðhalda óstöðugleika og þær aðstæður að íslensk heimili verði of skuldsett munu koma upp aftur ef við fylgjum þessum aðgerðum ekki eftir til fulls. Ég vil því nota tækifærið hér og árétta og hvetja stjórnvöld til að fylgja þessum aðgerðum eftir til fulls og afnema verðtryggingu af neytendalánum, nýjum og gömlum.“
Sem fyrr segir kýs drjúgur meirihluti þess fólks, sem tekur ný lán, verðtryggð lá.
Willum Þór talaði um skuldaleiðréttingarmálin og sagði þingið hafa nægan tíma til að ljúka þeim málum fyrir sumarhlé. Honum var verðtryggingin ofarlega í huga. Samanber þetta:
„Þegar leiðréttingin er gengin í gegn og íslensk stjórnvöld taka höndum saman með stjórnvöldum og beina skattfrjálsum séreignarsparnaði sínum til niðurgreiðslu höfuðstóls þá blasir við að afnema þarf verðtryggingu almennt af lánum, nýjum sem gömlum. Þrátt fyrir að sá hluti lána sem færður verður nú niður sé varinn verðtryggingunni, ef svo má að orði komast, verður að koma í veg fyrir að annar eins skellur geti komið á húsnæðisskuldir. Það mun jafnframt auka stöðugleika fjármálakerfisins og styrkja peningamálastefnu Seðlabankans þar sem stýritæki vaxta verður skilvirkara í þeirri viðleitni að ná verðbólgumarkmiðum.“
Af þessu er ljóst að látakendur kjósa verðtryggð lán frekar en óverðtryggð, þvert á skoðanir margra stjórnmálamanna.