Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, er sagður vera með lægri laun en kollegar hans á höfuðborgarsvæðinu.
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir, oddviti bæjarlistans í Hafnarfirði, vekur athygli á þessu á Facebooksíðu sinnu.
„Hagstæðasti bæjarstjóri höfuðborgar-svæðisins.
Launakjör bæjarstjóra eru talsvert rædd þessa dagana. Því vil ég benda á að laun okkar bæjarstjóra fylgja ekki þingfararkaupi og taka ekki hækkunum kjararáðs. Í dag munar upp undir milljón á bæjarstjóra Hafnarfjarðar og Kópavogs, svo dæmi sé tekið. Það er eitthvað ofan á brauð. Við viljum Harald áfram.“
Vilji bæjarlistans er að Haraldur haldi áfram sem bæjarstjóri.