Fyrr í dag birtum við hér á Miðjunni sýnishorn þriggja greina sem birtast í Mogga helgarinnar. Höfundarnir eru Kolbrún Bergþórsdóttir, Björn Bjarnason og Davíð Oddsson.
Mogginn lét það ekki nægja. Davíð skrifar harðan leiðara um þetta sama efni. Merkast af því sparki er ákall til ríkisstjórnarinnar um að semjist ekki um helgina að sett verði lög á Eflingu.
Hér koma stutt brot úr leiðaranum: „Flestir skynja að þessi harða og illleysanlega kjaradeila ógnar öryggi og hagsæld þjóðarinnar allrar.“ Ef þetta er svona, því eru laun þeirra sem lægst hafa launin, hækkuð?
„Það er óneitanlega eitthvað kyndugt við að 48 af 77 olíubílstjórum hjá Eflingu – hálaunamenn á vísu ófaglærðs verkafólks.“
Nú er komið að herópi Davíðs:
„Takist það ekki skella stórskaðleg verkföll aftur á og þess verður þá vart langt að bíða að SA hugleiði verkbann. Af þeirri ástæðu er rétt að brýna það einnig fyrir stjórnvöldum að það líður að elleftu stundu. Takist ekki að ná samningi um helgina verður ekki lengi umflúið að setja lög til þess að tryggja öryggi og vinnufrið í landinu.“